Góða kvöldið og gleðilegt ár!
Þá er gengið í garð nýtt starfsár hestamannafélagsins og langar mig til að virkja þessa síðu okkar aðeins fyrir fréttir og auglýsingar fyrir félagið. Ástæða þess fannst mér vera að tilkynningar og fréttir eiga það til að hverfa í umræðunni inn á facebook síðunum okkar :)
Vonandi verður Covid ekki með mikla stæla við okkur í vetur og við getum aðeins hist og átt skemmtilegar stundir saman í reiðhöllini okkar og undir berum himni.
Aðalfundur félagsins fór fram sunnudagskvöldið síðastliðið á Zoom vegna takmarkanna og smita í samfélaginu.
Það var ágætlega mætt á þann fund og hef ég uppfært stjórn og nefndir, endilega látið mig vita ef ég hef eitthvað skráð rangt þar.
Með von um gott samstarf í vetur
Kv. Hafrún