Í vetur hóf Hestamannafélagið Hornfirðingur samstarf við FAS vegna kennslu í hestafræðum í skólanum.
Var gerður samningur milli aðilanna um afnot af reiðhöllinni við verklega kennslu á Hestabrautinni.
Um er að ræða tímamótasamning þar sem FAS hefur ekki boðið upp á kennslu í hestafræðum áður. Byggt er á námi frá Framhaldsskólanum í Mosfellsbæ (FMOS).
Hófst námið með bóklegum tíma á haustönn en á vorönn 2022 verða kenndir 2 áfangar, 1 bóklegur og 1 verklegur og fara þeir að mestu fram í reiðhöllinni.
Skráðir eru 22 nemendur haustið 2021.
Stefán Sturla sér um bóklega kennslu og þau Ómar Ingi og Jasmina um verklega kennslu.
Er þetta mjög jákvætt skref fyrir hestamennskuna hér á svæðinu. Verður spennandi að sjá hvernig knapar og hestar koma undan vetri og verður þetta vonandi áframhaldandi samstarf til lengri tíma.