Auk venjulegra aðalfundarstarfa munu mæta á fundinn Dr. Þorvaldur Kristjánsson, ábyrgðarmaður hrossaræktar RML og Sveinn Steinarsson formaður félags hrossabænda og flytja mjög áhugaverð erindi um það sem er efst á baugi í greininni, markaðsátak í hestamennsku, sýningarárið 2015 í kynbótadómum, vinna við nýjan dómskala í kynbótadómum, val kynbótahrossa landsmót og framkvæmd Landsmóts 2016.
Ath. Skráning á folaldasýningu er á [email protected] eða á Messenger á facebook. Sendið IS númer nafn folalds/tryppi, faðir, móðir, eigandi og ræktandi. Skráið endilega sem fyrst, í síðasta lagi fyrir kl. 17:00 í dag 29/1.
Félag hrossabænda-Hornafjarðardeild